|
Aðalfundur alþjóðanefndar |
|
Written by imsic
|
|
Tuesday, 19 October 2010 21:17 |
Aðlfundur Alþjóðanefndar verður 21.október næstkomandi kl 19:00 á Hressó. Á dagskránni eru venjubundin fundarstörf þar sem skýrsla formanns, gjaldkera og innskiptastjóra verða kynntar.
Að því loknu verða skiptin kynnt og samningar sem er í boði fyrir næsta sumar. Nokkrir nemendur segja okkur svo frá skiptum sínum. Þær Þóra Soffía Guðmundsdóttir og Elín Björk Tryggvadóttir kynna ferð sína til Perú og Svala Aðalsteinsdóttir mun segja okkur frá dvöl sinni í Frakklandi. Einnig munu Ásdís Egilsdóttir, Brynhildur Hafsteinsdóttir og Fríða Guðný Birgisdóttir kynna Kenýaverkefnið en það er hjálparstarfsverkefni sem systurnefndin okkar í Noregi stendur fyrir (http://kenya-project.org)
Í stuttu máli þá sér Alþjóðanefndin um sumarskipti læknanema. Þar gefst læknanemum, preklínskum og klínskum, tækifæri til að fara utan einn mánuð í senn og starfa á erlendum spítala. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast mismunandi heilbrigðiskerfum, auka færni ykkar á viðkomandi deild og kynnast læknanemum alls staðar að. Skiptinámið er í þokkabót mjög hagstætt. Nefndirnar í viðkomandi landi sjá nemunum fyrir húsnæði, máltíð á dag, auk þess að skipuleggja félagslíf fyrir nemana.
Frekari upplýsingar um skiptin má finna hér til vinstri undir Nemendaskipti strax eftir aðalfundinn. Þar verða upplýsingar um samninga sem eru í boði fyrir sumarið 2011 og hvernig á að sækja um.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!;)
Kveðja, Alþjóðanefnd |
|
|
Written by imsic
|
|
Tuesday, 19 October 2010 15:51 |
|
 Í sumar komu 21 skiptinemi til Íslands þar af 1 í júní, 11 í júlí og 9 í ágúst. Krakkarnir komu víða að en þau voru frá Hong Kong, Kanada, Svíþjóð, Danmörku, Frakkland, Jórdaníu, Spání, Slóvakíu, Hollandi, Tékklandi, Litháen, Lúxemburg , Þýskalandi, Rúmeníu, Finnlandi og Noregi. Nemendurnir voru á hinum ýmsu deildum á Landspítalanum bæði í Fossvogi og á Hringbraut. Sem dæmi má nefna brjóstholsskurðdeild, öldrunarlækningadeild, bráðamóttökunni og barnadeild. Þeir voru almennt séð mjög ánægðir með deildirnar sínar og lengra komnir nemendur voru sérstaklega ánægðir með að fá gott tækifæri til að sýna sjálfstæð vinnubrögð. Alþjóðanefnd hélt uppi öflugu félagsstarfi í sumar, þar sem farið var með nemendurna í ferðir um landið, vikulegar kaffihúsaferðir og haldin partý. Farið var með hópana Gullna hringinn og í helgarferð og voru allir glaðir og sáttir með það. Haldið var Íslendingakvöld þar sem nemunum var boðið upp á ekta íslenskan mat og drykk. Hápunkturinn var svo Alþjóðakvöldið þar sem allir komu með mat og drykk frá eigin heimalandi. Einnig var frábært hversu margir tengiliðir og aðrir utanaðkomandi læknanemar voru duglegir að taka þátt í félagsstarfinu og hvet ég sem flesta að taka þátt næsta sumar! 
Fyrir hönd Alþjóðanefndar vil ég þakka starfsmönnum Landspítlans, sem sinntu erlendum nemendunum, kærlega fyrir. Einnig öðrum læknanemum sem hjálpuðu okkur að gera dvöl krakkanna utan spítalans skemmtilegri. Sigríður Sunna Gunnarsdóttir, fráfarandi innskiptastjóri |
|
Written by Elín Björk Tryggvadóttir
|
|
Saturday, 10 January 2009 13:37 |
Langar þig að fara til útlanda, kynnast því hvernig er að vinna á sjúkrahúsi erlendis, upplifa ólíka menningu og kynnast erlendum læknanemum? Hvort sem þú ert preklínískur eða klínískur nemi þá eru nemendaskipti á vegum Alþjóðanefndar eitthvað fyrir þig. Íslenskir nemar hafa í gegnum tíðina farið víða s.s. til Brasilíu, Indónesíu, Rúmeníu, Grikklands, Egyptalands, Indlands, sem og til allra Norðurlandanna. Þar verður engin breyting á í ár, en á lista okkar má finna lönd staðsett í öllum heimsálfunum. Árlega fara yfir 7000 læknanemar í skiptinám á vegum samtakanna IFMSA (Alþjóðasamtök læknanema; sjá nánar á www.ifmsa.org). Læknanemar fá þannig tækifæri til að starfa á erlendum spítala og kynnast heilbrigðiskerfi og aðstæðum viðkomandi lands. Nefndirnar sjá um að útvega þeim nemum, sem þær taka á móti, húsnæði, eina máltíð á dag (eða greiðslu fyrir einni máltíð), auk þess að skipuleggja félagslíf fyrir nemana. Eins og ástandið er í dag telja fæstir sig hafa efni á meiru en að dreyma um útlönd. En einmitt í slíku árferði eru nemendaskipti álitlegur kostur. Umsóknarfrestur er til 13. febrúar n.k. Því fyrr sem sótt er um, því meiri líkur eru á að komast til þess lands sem óskað er. Til að fá nánari upplýsingar smellið á Nemendaskipti hér til vinstri. |
|
Written by Gunnar Baldvin Björgvinsson
|
|
Sunday, 16 March 2008 20:25 |
|
Bangsaspítali var haldinn í þriðja skipti helgina 16. og 17. febrúar s.l. á göngudeild Barnaspítala Hringsins, og heppnaðist vel. Fyrsti Bangsaspítalinn á Íslandi var haldinn fyrir ári síðan, og einnig á 50 ára afmæli Barnaspítala Hringsins s.l. sumar. Fjöldi barna af leikskólunum Rofaborg og Vesturborg komu á nýjasta Bangsaspítalann með bangsana sína í læknisskoðun. Ýmislegt hrjáði bangsana, en spurning hvort nefna megi það vegna þagnarskyldu :-). Eflaust má þó gefa gróft yfirlit; en einstaka bangsar höfðu dottið úr tré, dottið niður stiga, var illt í eyrunum, eða voru með magapínu. Læknanemar af öllum árum tóku þátt í Bangsaspítalanum, þótt þau eldri hafi verið meira áberandi, og veittu tuskudýrunum og aðstandendum þeirra, læknisþjónustu eftir bestu getu. Sem betur fer tókst að lækna alla bangsana og voru þeir leystir út með leiðbeiningar um viðeigandi meðferð, og hefur heyrst að börnin hafi fylgt þessum leiðbeiningum eftir af mikilli samviskusemi. Bangsaspítalinn byggir á erlendri fyrirmynd, en Bangsaspítalar hafa verið starfræktir víða um heim með því markmiði að uppræta hræðslu barna við lækna og heilbrigðisstofnanir. Þetta hefur gefist vel og sýnt sig að börn sem koma á Bangsaspítala eru líklegri en aðrir til þess að leita sér læknisaðstoðar þegar eitthvað bjátar á. Hinn íslenski Bangsaspítali hefur verið starfræktur af Lýðheilsufélagi læknanema, sem er afsprengi Alþjóðanefndar læknanema. Bangsaspítalinn er kjörinn vettvangur fyrir læknanema, og þá sérstaklega þá yngri (sem ekki enn eru komin á klínísku árin), til þess að öðlast reynslu í samskiptum við börn, og móttöku “sjúklinga”. Þetta er því hinn ágætasti undirbúningur fyrir framtíðina, og um að gera að hvetja læknanema til þess að prófa að lækna bangsa a.m.k. einu sinni í námi sínu. |
|
Written by Hjörtur Brynjólfsson
|
|
Monday, 04 February 2008 07:23 |
|
Jæja, nú með hækkandi sól og hressandi lægðagangi fer sumarið að nálgast. Flestir farnir að hugsa um sumarvinnuna nema 1. árs nemar sem hugsa eflaust um lítið annað en Trigonum cervicales eða um undraheima Hippocampus og limbíska kerfisins. Það er þó ráð að huga betur að sumrinu og þá einmitt hvort þú hafi ekki áhuga á því að söðla aðeins um og kynnast því hvernig er að vinna erlendis á spítala og kynnast miklum fjölda af erlendum læknanemum. Hér til hægri finnur þú hlekk á nemendaskipti sem ætti að veita þér meiri upplýsingar.  kv. Nemendaskiptastjóri |
|
|
<< Start < Prev 1 2 Next > End >>
|
|
Page 1 of 2 |