|
1. Nafn og varnarþing 1.1. Félagið heitir Alþjóðanefnd læknanema eða Icelandic Medical Students International Committee, skammstafað IMSIC. 1.2. IMSIC er hluti af Félagi Læknanema, en hefur eigin lög, kennitölu og fjárhag. 1.3. Varnarþing þess er í Reykjavík.
2. Staða 2.1. IMSIC er félag læknanema á Íslandi, óháð trú, stjórnmálaskoðunum og félagslegri stöðu. 2.2. IMSIC er fulltrúi Íslands í International Federation of Medical Students Association (IFMSA).
3. Stefnumál 3.1. Gera íslenskum læknanemum kleyft að sækja sér hagnýta klíníska reynslu og bjóða erlendum læknanemum sama möguleika hérlendis. 3.2. Vera málsvari Íslands í alþjóðasamstarfi læknanema innan IFMSA. 3.3. Vera vettvangur fyrir læknanema að framkvæma hugmyndir sínar á sviðum forvarna og lýðheilsu. 3.4. Kynna IFMSA og alþjóðleg verkefni þess fyrir íslenskum læknanemum og hvetja þá til virkrar þátttöku í starfsemi samtakana.
4. Félagsmenn 4.1. Félagar teljast þeir stúdentar sem stunda nám í læknisfræði við Háskóla Íslands. 4.2. Öllum er frjálst að ganga úr félaginu.
5. Aðalfundur 5.1. Aðalfundur félagsins skal haldinn í september eða október ár hvert. 5.2. Til aðalfundar skal formaður boða með 2 vikna fyrirvara. 5.3. Krefjist helmingur félagsmanna aukaaðalfundar skal stjórn boða til hans innan tveggja vikna. 5.4. Lagabreytingatillögur skulu liggja fyrir minnst viku fyrir aðalfund. Til að öðlast gildi þurfa lög að vera samþykkt af 2/3 hluta fundarmanna á aðalfundi. 5.5. Dagskrá aðalfundar: a) Skýrsla stjórnar b) Ársreikningar kynntir til samþykktar c) Lagabreytingar d) Kosning til embætta e) Önnur mál
6. Stjórn og embætti 6.1. Stjórn er skipuð 9 fulltrúum læknanema. Tveir af hverju af fjórum fyrstu árunum auk eins fulltrúa af 5. ári. 6.2. Stjórn skiptir með sér verkum og útnefnir formann, gjaldkera, ritara, innskiptastjóra (NEO in), útskiptastjóra (NEO out), aðmírál. 6.3 Stjórn má tilnefna í embætti verkefnisstjóra. 7. Samstarf við önnur félög 7.1. Fulltrúar Kennslu og fræðslumálanefndar Félags læknanema skal hafa tækifæri til að sækja ráðstefnur IFMSA og þá sem fulltrúar í Standing Committee on Medical Education. Formanni nefndarinnar er og frjálst að bæta við sig titlinum National Officer on Medical Education (NOME). 7.2. Fulltrúar Ástráðs, félags læknanema um forvarnir, skulu hafa tækifæri til að sækja ráðstefnur IFMSA og þá sem fulltrúar í Standing Committee on Reproductive Health and AIDS. Formanni ástráðs er og frjálst að bæta við sig titlinum National Officer on Reproductive Healt and AIDS (NORA). 7.3. Fulltrúar Lýðheilsufélags læknanema skulu hafa tækifæri til að sækja ráðstefnur IFMSA og þá sem fulltrúar í Standing Committee on Public Health. Formanni nefndarinnar er og frjálst að bæta við sig titlinum National Officer on Public Health (NOPH).
8. Skipti 8.1. Umsókn um skipti telst afgreidd 24 klukkustundum eftir að nemandi sem fyrstur sækir um ákveðinn samning hefur skilað umsókn til útskiptastjóra. 8.2. Afgreiða verður umsókn um skipti næstkomandi sumars fyrir 31. janúar. 8.3. Umsóknargjald fyrir einhliða samning er 8.000 kr. og 24.000 kr. fyrir tvíhliða samning. Fyrir tvíhliða samning eru greiddar 8.000 kr. fyrir samninginn og svo 16.000 kr. eftir að samningur hefur verið samþykktur af viðkomandi landi. 8.4. Ekki þarf að greiða umsóknargjald aftur næsta ár hætti nemandi við og umsókn því ekki nýtt. Samþykki viðkomandi land ekki nemandann verður umsóknargjaldið endurgreitt. 8.5. Umsóknartímabil skipta hefst 1. nóvember fyrir sumar næstkomandi árs. Í nóvember verða aðeins umsóknir þeirra sem hafa verið tengiliðir eða aðstoðað við starf Alþjóðanefndar læknanema á annan hátt afgreiddar. Þann 1. desember hefst afgreiðsla umsókna annarra nemenda og er þá ekki farið eftir fyrrgreindri forgangsröðun. 8.6 Stjórnarmeðlimir forgangsraða nemendum eftir virkni í sumarstarfi nefndarinnar svosem hvort þeir hafi verið tengiliðir eða hjálpað við starfið á annan hátt. Afgreiddar umsóknir verða ekki ógildar sæki nemandi sem ofar er í forgangsröðun um skipti í því landi sem samningur á við. Nemendur sem lengra eru komnir í námi við læknadeild ganga fyrir ef tveir eða fleiri í sömu forgangsröðun sækja um áður en umsókn er afgreidd. 8.7. Sæki tveir eða fleiri nemendur á sama stað í forgangsröðun og á sama námsári um óafgreiddan samning er úrskurðað með hlutkesti hver þeirra hlýtur samninginn. 8.8. Sæki nemandi um tvö eða fleiri skipti sama sumarið gildir fyrrnefnd forgangsröðun um fyrri umsókn þess nemanda en hann fer aftast í forgangsröðun fyrir seinni umsóknina. Sá nemandi fær aðeins einn tvíhliða samning nema einn eða fleiri tvíhliða samningar séu ekki þegar nýttir 31. Janúar. 8.9. Nemendur geta óskað eftir samningum við ákveðin lönd fyrir ágústfund. Nemendur þurfa að vera ákveðnir í að nýta þann samning og náist hann þurfa þeir að greiða umsóknargjaldið fyrir 1. nóvember sama ár, eftir þann tíma verður samningur við viðkomandi land laus til umsóknar annarra nemenda. Fyrrgreind forgangsröðun gildir einnig hér svo fyrst verður reynt að ná samningum fyrir þá sem efstir eru í henni. 8.10. Vafaatvik eru metin af stjórn Alþjóðanefndar læknanema og hún úrskurðar í þeim á almennum stjórnarfundi, með kosningu innan stjórnar ef þörf krefur.
Uppfært 27.10.2011
|