Alþjóðanefnd læknanema gefur íslenskum læknanemum tækifæri til að öðlast klíníska reynslu erlendis Mynd af læknanemum
Lýðheilsustarf

Lýðheilsufélagið varð fyrst til innan Alþjóðanefnd læknanema en er í dag sjálfstætt starfandi félag. Hér má nálgast síðu þeirra - www.lydheilsufelag-laeknanema.org

Lýðheilsufélag læknanema var stofnað haustið 2006. Fyrirmyndin er fengin frá Alþjóðasamtökum læknanema í gegnum starf Alþjóðanefndar, en lýðheilsustarf er einn stærsti þátturinn í starfi læknanema í mörgum löndum.

Í byrjun skólaárs 2006 tók góður hópur læknanema af öllum árum að hittast reglulega og byrja að undirbúa og skipuleggja starfið. Markmiðið var að sinna forvörnum og fræðslu um heilsutengd málefni, að láta gott af sér leiða um leið og læknanemar sem taka þátt fengju reynslu og þekkingu sem þeir ættu erfitt með að afla sér annars staðar. Lýðheilsufélagið var líka hugsað sem vettvangur fyrir læknanema til að koma hugmyndum sínum og hugsjónum í framkvæmd.

Til að byrja með var lagt upp með þrjú verkefni, bangsaspítala, blóð- og líffæragjafir, og greinaskrif.

Auðveldlega gekk að koma greinaskrifunum af stað. Haft var samband við Fréttablaðið og tóku þeir vel í hugmyndina og buðu okkur að vera með reglulega pistla í blaðinu. Frá miðjum nóvember hafa svo birst reglulega greinar eftir læknanema. Er umfjöllunarefnið margvíslegt, sem dæmi má nefna: Hreyfingu, sykursýki, langvinna lungnateppu og heilsu ferðamanna. Skrifstofa kennslu, vísinda og þróunar (SKVÞ) á LSH hafa verið sérlega hjálpleg og séð til þess að sérfræðingar lesi yfir allar greinar sem birtast og þannig hefur tekist halda vissum gæðastimpli á skrifunum.

Haustið 2007 var ákveðið að endurskoða starfið. Greinarskrif voru sett á ís í bili og ákveðið að einbeita sér að Bangsaspítla, blóðgjafaátaki og í stað líffæragjafaátaki þá var stefnt á að halda reglulega málþing um ýmis málefni sem tengjast lýðheilsu.

Bangsaspítali
Bangsaspítölum hafa læknanemar um allan heim komið á fót. Hugmyndin er sú að barn komi með bangsann sinn til læknis. Bangsinn er veikur og barnið (sem foreldri) kemur með hann til læknis þar sem fram fer viðtal, skoðun og svo er reynt að lækna bangsann eftir því sem við á. Settar eru umbúðir, plástrað, saumað o.s.frv.
Kennsla um mannslíkamann
Tilgangurinn með bangsaspítalanum er að kynna lækna og heilbrigðisstofnanir fyrir börnum í gegnum leik og þannig reyna að koma í veg fyrir vanlíðan og hræðslu þegar þau sjálf þurfa svo að leita læknis. Ekki skiptir minna máli að með þessu fá læknanemar tækifæri til að þjálfast í samskiptum við börn.

Fyrsti Bangsaspítalinn var haldinn 15. mars 2007 á Læknavaktinni við Smáratorg. Komu börn frá leikskólanum Stekkjarási í Hafnarfirði með veika bangsa sína. Í vikunni áður höfðu þau fengið heim með sér bréf þar sem foreldrar voru hvattir til að leyfaBósi ljósár fær aðhlynningu börnunum að ákveða sjálf hvaða sjúkdómur/meiðsl hrjáðu bangsann. Þegar börnin komu á Læknavaktina tók við innritun bangsans og bið eftir að læknir kallaði á þau inn til skoðunar. Á meðan beðið var gátu börnin fræðst og leikið sér með leikmuni tengda líkamanum og starfsemi hans. Aðstoðuðu læknanemar þau við að taka í sundur eyru og kviðarlíffæri og setja saman aftur.
Tókst þessi fyrsti Bangsaspítali með eindæmum vel og vakti mikla og jákvæða athygli fjölmiðla.

 19.júní var Lýðheilsustarfið beðið um að setja upp Bangsaspítala á afmælishátíð Barnaspítala Hringsins. LæknanemarÁnægðar eftir skemmtilega heimsókn til læknisins brugðust vel við og stóðu Bangsaspítalavakt þar sem tekið var á móti yfir 50 börnum með veika bangsa sína. Hafður var annar háttur á varðandi skráningu í þetta skiptið en börnin fengu úthlutaðan tíma til að hitta sinn Bangsa-lækni. Tókst þetta mjög vel og voru starfsmenn Barnaspítalans ánægð með framtakið og aðstoðina.

Haldinn verður nýr Bangsaspítali í byrjun janúar 2008.

Blóðgjafamánuður
Mars 2007 var sérstakur blóðgjafamánður læknanema. Verkefninu var hleypt af stokkunum með fræðslufundi Blóðbankans og Lýðheilsufélagsins en vonir stóðu til að sem flestir læknanemar myndu slá til og gefa blóð. Markmiðið var að sem flestir læknanemar yrðu virkir framtíðarblóðgjafar og sýndu þar með gott fordæmi fyrir aðrar heilbrigðisstéttir. Í framhaldinu má e.t.v. koma á fót blóðgjafakeppni milli ára, eða jafnvel milli deilda Háskólans.

Málþing um heilsutengd málefni
Lýðheilsufélagið stefnir að því að halda málþing um hin ýmsu málefni. Málin tengjast þá lýðheilsu, gjarnan mál sem ofarlega á baugi í þjóðfélaginu. Með þessu gefst læknanemum tækifæri fræðast um ýmis málefni sem og að láta í sér heyra og koma skoðunum sínum á framfæri.
Stefnt er að halda að minnsta kosti tvö stór málþing á ári, eitt á hvoru misseri.

Í lok nóvember 2007 hélt Lýðheilsufélag læknanema málþing um frumvarp um breytingu á lögum um sölu áfengis í matvöruverslunum. Málþingið var haldið í Öskju og var mjög vel mætt á það.

 
Alþjóðanefnd læknanema
Webfeed
Vefur frá EF Veflausnum