| Nemendaskipti |
|
Um skiptin Árlega fara yfir 7000 læknanemar í skiptinám á vegum samtakanna IFMSA (Alþjóðasamtök læknanema; sjá nánar á www.ifmsa.org). Íslenskir nemar hafa í gegnum tíðina farið víð t.d. Brasilíu, Indónesíu, Rúmeníu, Grikkland, Egyptaland, Indland sem og til allra Norðurlandanna. Nefnd þess lands sem ferðast er til sér um að um að útvega nemum sínum húsnæði, eina máltíð á dag (eða greiðslu fyrir einni máltíð), auk þess að skipuleggja félagslíf fyrir nemana. Á hverjur ári gera lönd samninga um skipti sín á milli á alþjóðlegum fundi í ágúst. Slíkir samningar eru af tveim gerðum: unilateral og bilateral. Munurinn á þessum tveimur samningum er sá að í unilateral samningnum er aðeins um einn nema að ræða, annað hvort fer einn út eða að einn nemi kemur hingað. Hins vegar í bilateral samningnum eru tveir nemar, einn sem fer og annar sem kemur hingað Fari nemi í unilateral skipti þarf hann að greiða nefndinni sem tekur á móti honum upphæð á bilinu 250 - 350 evrur (mismunandi eftir löndum) auk 8.000 kr umsóknargjalds. Bilateral nemar greiða 8.000 kr í umsóknargjald og svo 16.000 kr í staðfestingargjald.
Umsóknarskilyrði og –frestur Nemendum er gefinn kostur á að óska eftir landi sem þeir vilja fara í skiptinám til fyrir ágúst fund IFMSA á hverju ári. Reyna meðlimir Alþjóðanefndar að fylgja eftir þeim óskum þegar samningar eru gerðir. Með þessu er verið að tryggja að sem flestir tvíhliðasamningar séu nýttir af íslenskum nemum. Forgangsröðun gildir þar sem reynt verður fyrst að ná samningum fyrir þá sem hafa verið tengiliðir, verið virkir í nefndinni og eru lengra komnir í náminu (sjá nánar undir lög). Nemendur sem sækja um fyrir ágúst fundinn þurfa að vera ákveðnir í að nýta þann samning og náist hann þurfa þeir að greiða umsóknargjaldið fyrir 1. nóvember, sama ár en eftir þann tíma verður samningur við viðkomandi land laus til umsóknar annarra nemenda. Þeir sem hafa verið tengiliðir eða starfað með nefndinni eru síðan með umsóknarfrest sem er 1.nóvember til 30. nóvember. Sæki fleiri en einn nemandi um sama samning þá er farið eftir virkni nemanda í nefndinni eða námsári þeirra í læknadeild (sjá nánar undir lög). Þann 1. desember hefst svo afgreiðsla umsókna annarra nemenda og lokafrestur er 31. janúar. Ástæðan fyrir forgangsröðuninni er að því miður er takmarkað magn af samningum í boði og á þennan hátt er hægt að úthluta þeim á sem sanngjarnastan hátt. Að þessu gefnu viljum við því hvetja læknanema til að bjóða sig fram sem tengiliða þegar þar að kemur og vera duglegir í að taka þátt í sumarstarfi nefndarinnar. Þannig eru auknar líkur á að þið nælið ykkur í tvíhliðasamning og getið meira ráðið hvert þið farið! Semsagt umsóknarfrestur er: Forgangshópur: 1. -30. nóvember Allir: 1. desember-31. janúar Samningar 2012 Hér fyrir neðan sjást samningar nefndarinnar fyrir sumarið 2012. Í neðangreindum unilateral samningum felst að einn nemi kemur hingað. Mögulegt er að breyta þessum unilateral samningum í bilateral samninga og þið þannig komist til þeirra landa. Við hvetjum þó fólk til að nýta þá bilateral samninga sem hafa verið gerðir.
Umsókn Birta Dögg Ingud. Andrésdóttir er útskiptasjóri, mun taka við óskum um land þegar umsóknartímabilið er hafið. Sendið á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it . Ef samningurinn er laus þá fáið þið aðgang að umsókn sem þið þurfið að fylla út en þurfið jafnframt að borga staðfestingargjald til að fá umsóknina (ekki endurkræft). Nemendur á öllum árum geta sótt um en flest þessara landa vilja fá nemendur sem eru byrjaðir í klínísku námi. Íslendingar fá þó oft undantekningu á þessu þ.a. ekki hika við að sækja um! Frekari upplýsingar um skilyrði frá hverju landi getið þið fundiðhér. Þar getið þið séð t.d. hvaða mánuðir eru í boði, hvaða borgir o.s.frv. Vinsamlegast kynnið ykkur þetta vel ef þið hafið fengið samning við viðkomandi land. Frekari upplýsingar um skiptin veitir Birta Dögg Ingud. Andrésdóttir ( This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it ) en einnig getið þið haft samband við fulltrúa IMSIC í ykkar bekk.
|

