| Starfsemi nefndarinnar |
|
Alþjóðanefnd læknanema á Íslandi (IMISC) er fulltrúi íslenskra læknanema á erlendum vettvangi og kemur fram fyrir þeirra hönd innan International Federation of Medical Student´s Associations (IFMSA) og skyldum samtökum. IMSIC sinnir fyrst og fremst nemendaskiptum og stuðlar einnig að þátttöku læknanema í þróunaraðstoð og öðrum verkefnum. Alþjóðanefnd var stofnuð árið 1957 og hefur síðan þá verið virkur meðlimur á alþjóðavettvangi, m.a. var forseti alþjóðlegu læknanemasamtakanna IFMSA Björg Þorsteinsdóttir starfsárið 1997 - 1998. Í stjórn IMSIC sitja 8 nemendur af fyrstu fjórum árum námsins en að auki er einn nemandi af 5. ári sem verkefnastjóri. |

